
HBH Byggir sérhæfir sig í heildarlausnum á sviði byggingaframkvæmda, hvort heldur er fyrir einstaklinga, fyrirtæki eða stofnanir. Þar á meðal má nefna nýbyggingar, framkvæmdir innanhúss, lóðaframkvæmdir og innréttingar fyrir báta og skip.
Helstu viðskiptavinir HBH Byggis eru fyrirtæki í hátækniiðnaði, bankastarfsemi, verslunarrekstri og útgerð, svo og opinberar stofnanir en einnig einstaklingar sem gera miklar kröfur og vilja hátt þjónustustig. HBH er með starfsemi í Reykjavík og London.
Um 30 starfsmenn vinna hjá fyrirtækinu sem býr yfir afar fullkomnu trésmíðaverkstæði auk þess sem öflugur tækjakostur gerir fyrirtækinu kleift að takast á við fjölbreytt verkefni fyrir breiðan hóp viðskiptavina.




